Lýsing
Mjög lágvaxin jurt (2–5 sm) með stuttstilkuð eða stilklaus stofnblöð og hvít eða ljósrauð blóm.
BlaðStofnblöðin stuttstilkuð eða stilklaus, 5–7 mm á breidd (Hörður Kristinsson 1998). Blöðin rúnnuð og bogtennt, oftast hárlaus og gljáandi á efra borði, purpurarauð á neðra borði (Lid og Lid 2005).
BlómBlómstilkur stuttur og giskirtilhærður, án langra hára. Blómin greinilega stilkuð, fá saman. Krónublöð lítil, hvít eða ljósrauð (Lid og Lid 2005). Fræni niðursveigð (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist snæsteinbrjóti en er miklu smærri, vex aðeins hátt til fjalla og hefur stuttstilkuð eða stilklaus blöð. Auk þess hefur dvergsteinbrjótur niðurbeygðari fræni. Náskyldar tegundir sem ekki verða alltaf örugglega aðgreindar.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Biota
- Tegund (Species)
- Dvergsteinbrjótur (Saxifraga tenuis)