Útbreiðsla
Einn sjaldgæfasti steinbrjótur landsins. Hann vex aðeins til fjalla, oftast í 800–1200 m hæð. Hann finnst aðeins á nokkrum fjöllum á svæðinu frá Skagafirði austur í Þingeyjarsýslu á Miðnorðurlandi. Á nokkru svæði umhverfis Öxnadalinn og Öxnadalsheiði má heita að hann sé á hverju fjalli en þó á mjög takmörkuðum blettum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Lindaseytlur eða neðan bráðnandi skafla, meot ofan 900 m y.s.Lýsing
Lágvaxin jurt (3–12 sm) með græna blaðhvirfingu og greinda blómskipan en blómgast venjulega ekki heldur myndar æxliknappa.
BlaðBlaðhvirfingarblöðin græn, tennt yst, svo gott sem hárlaus (Lid og Lid 2005).
BlómBlómgast venjulega ekki en hefur þyrpingu af dökkmóleitum æxlikornum á enda blómleggjanna (Hörður Kristinsson 1998). Blómstilkur greindur, miðstilkurinn lengri en þeir til hliðanna (Lid og Lid 2005).
AldinMyndar þyrpingu dökkmóleitra æxlikorna á enda blómleggjanna (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist stjörnusteinbrjót en vex aðeins hátt til fjalla og blómgast venjulega ekki. Blöðin eru svipuð og á stjörnusteinbrjóti en þó heldur mjórri (Hörður Kristinsson 1998).
Válistaflokkun
VU (tegund í nokkurri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
VU | NE |
Forsendur flokkunar
Hreistursteinbrjótur flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, þ.e. minna en 20 km2.
Viðmið IUCN: D2
D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Hreistursteinbrjótur er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Hreistursteinbrjótur er á válista í hættuflokki LR (í nokkurri hættu).
Verndun
Hreistursteinbrjótur er friðaður samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.
Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Lindaseytlur eða neðan bráðnandi skafla, meot ofan 900 m y.s.Biota
- Tegund (Species)
- Hreistursteinbrjótur (Saxifraga foliolosa)