Lýsing
Fremur lágvaxin jurt (5–20 sm) sem myndar breiður eða flatar þúfur og blómstrar hvítum blómum.
BlaðFlatar þúfur eða breiður með skriðulum renglum. Stöngullinn langhærður en ekki kirtilhærður. Blöð með þrjá til sjö langa flipa (Lid og Lid 2005).
BlómKrónublöð meira en helmingi lengri en bikarblöðin (Hörður Kristinsson 1998). Blómin stór, mörg á hverjum stöngli. Blómknappar uppréttir. Krónublöð hvít til rauð (Lid og Lid 2005).
GreiningLíkist þúfusteinbrjóti en hefur gisnari og minna þúfumyndandi blaðsprota, stærri blóm og hlutfallslega lengri krónublöð (Hörður Kristinsson 1998).
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Biota
- Tegund (Species)
- Toppasteinbrjótur (Saxifraga rosacea)