Útbreiðsla
Mjög sjaldgæfur á Íslandi, aðeins fundinn á tveim stöðum á Vestfjörðum en þar er töluvert mikið af honum (Hörður Kristinsson 1998).Vistgerðir
Brattar og grýttar hlíðar.Lýsing
Lágvaxinn burkni (8–15 sm) með þrífjöðruð blöð og fjaðursepótta þriðju gráðu smábleðla.
BlaðLáréttur jarðstöngull. Blöðin ljósgræn, margskipt, þrífjöðruð, 3–7 sm á lengd, á löngum stilk. Smábleðlar þriðju gráðu fjaðursepóttir (Hörður Kristinsson 1998).
BlómGróbæru blöðin jafn mikið samsett og hin en bleðlarnir striklaga, verða nær sívalir, þar sem hliðarrendurnar verpast niður yfir gróblettina (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningHlíðaburkninn er ólíkur öllum öðrum íslenskum burknum og því auðþekktur frá þeim á blaðlöguninni.
Válistaflokkun
VU (tegund í nokkurri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
VU | NE |
Forsendur flokkunar
Hlíðaburkni flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 3 km2 auk þess sem einungis 3 fundarstaðir eru þekktir.
Viðmið IUCN: D2
D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Hlíðaburkni er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Hlíðaburkni er á válista í hættuflokki EN (í hættu).
Verndun
Hlíðaburkni er friðaður samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.
Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Brattar og grýttar hlíðar.Biota
- Tegund (Species)
- Hlíðaburkni (Cryptogramma crispa)