Útbreiðsla
Fremur sjaldgæf (Hörður Kristinsson 1998).Vistgerðir
Grasbalar, vallendi og grónar brekkur (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Lágvaxin jurt (5–10 sm) með einu, fjaðurskiptu blaði og klasa af gróhirslum.
BlaðÖrstuttur, uppréttur jarðstöngull með einu blaði sem greinist í tvennt ofan til. Annar hlutinn hefur greindan klasa af gróhirslum en hinn er fjaðurskipt blaðka. Blaðkan 1–2,5 sm á lengd, með fjaðursepóttum smáblöðum, þau lengstu 1–1,5 sm á lengd og 5–8 mm á breidd, með fjórum skerðingum hvoru megin (Hörður Kristinsson 1998).
BlómGróklasinn marggreindur (Hörður Kristinsson 1998).
AldinGróhirslur hnöttóttar, opnast með þverrifu (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst mánajurt en lensutungljurt er með lengri og reglulega fjaðursepótt smáblöð. Það er ekki alltaf auðvelt að greina þessar tvær tegundir að (Hörður Kristinsson 1998).
Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Grasbalar, vallendi og grónar brekkur (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Lensutungljurt (Botrychium lanceolatum)