Surtsey á frímerki Sameinuðu þjóðanna
Póstþjónusta Sameinuðu þjóðanna hefur gefið út sex ný frímerki með myndum af UNESCO heimsminjum á Norðurlöndum og er Surtsey á einu þeirra. Surtsey fór á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna árið 2008 sem einstakur staður náttúruminja á heimsmælikvarða. Náttúrufræðistofnun hefur frá upphafi Surtseyjargossins unnið að rannsóknum í Surtsey í samvinnu við Surtseyjarfélagið og Hafrannsóknastofnunina.

Aðrir staðir á Norðurlöndunum sem prýða frímerki Póstþjónustu Sameinuðu þjóðanna í þessari röð eru Krónborgarhöll í Danmörku, Stafkirkjan í Urnes í Noregi, Drottningarhólmahöll í Svíþjóð, Sveaborg virkið í Helsinki og Struve landmælingaboginn sem liggur frá Hammerfest í Noregi til Svarta hafsins.
Frímerki sem gefin eru út af Póstþjónustu Sameinuðu þjóðanna eru einungis notuð í aðalstöðvunum í New York eða á skrifstofunum í Vín og Genf.