Vetrarfuglatalningar 2012


Hópur hettumáfa við Hamarskotslæk í Hafnarfirði í október 2012. Ljósm. Erling Ólafsson.

Upplýsingarnar nýtast einnig til að fylgjast með langtímabreytingum á stofnum margra tegunda.

Talningarnar hófust hér á landi í desember 1952. Byggjast þær einvörðungu á sjálfboðaliðum og hafa margir þessara fuglaáhugamanna tekið þátt um áratugaskeið.

Niðurstöður talninga verða settar inn á vefsíðu Náttúrufræðistofnunar um vetrarfuglatalningar jafnskjótt og þær berast og þar er einnig að finna samantekt talninga 2002-2011 og talningareyðublað.  Sjá einnig flýtival á þá síðu hér til vinstri.

Nánari upplýsingar um einstök talningarsvæði o.fl. veita Kristinn Haukur Skarphéðinsson, Guðmundur A. Guðmundsson og Svenja N.V. Auhage.