Nishinoshima: ný eldey myndast sunnan Japan 24.03.2015 Hlusta Forsíða chevron_right Fréttir chevron_right 2015 chevron_right Nishinoshima: ný eldey myndast sunnan Japan Hin nýja Nishinoshima eyja, 25. desember 2014. Gufa stígur af gígnum sem hrauntungur liggja út frá. Á strönd glittir í klett sem er leif af gömlu eynni. – Ljósm. Japan Coast Guard Fjallað verður um litla og afskekkta eldey, Nishinoshima, sem liggur í eyjaklasa í Kyrrahafi, um 1000 km suður af Japan. Tíndir verða saman fróðleiksmolar um eyna og hún borin lítillega saman við Surtsey. Útdráttur úr erindinu Hrafnaþing er haldið í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar að Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ, í Krummasölum á 3. hæð. Hrafnaþing er opið öllum. Verið velkomin! Athugið að erindið verður ekki tekið upp.