Náttúrufræðistofnun nýtur áfram trausts meðal landsmanna

Stofnunin hefur tekið þátt í sömu könnun síðan 2007, að árinu 2013 undanskildu, og er hún áfram meðal þeirra stofnanna sem nýtur hvað mest trausts. Markmiðið með könnuninni er að kanna traust almennings til Náttúrufræðistofnunar Íslands og þróun á því, auk þess að bera niðurstöður saman við aðrar stofnanir.

Náttúrufræðistofnun Íslands nýtur mikils trausts 58% landsmanna, þar af bera um 8% fullkomið traust til stofnunarinnar, 22% mjög mikið traust og 28% frekar mikið traust. Þetta er heldur meira traust en mældist árið 2016 en þá naut stofnunin mikils traust 56% landsmanna. Hlutlausum fjölgaði um eitt prósentustig milli ára, úr 38% upp í 39% en fjöldi þeirra sem bera lítið traust til stofnunarinnar hefur hins vegar lækkað úr 6% niður í 2%.

Í samanburði við aðrar stofnanir kemur Náttúrufræðistofnun ágætlega út. Hún er fyrir ofan meðaltalið og er á róli með Umboðsmanni Alþingis og Háskóla Íslands.