Samantekt frjómælinga sumarið 2018

Á Akureyri var heildarfjöldi frjókorna 4.327 frjó/m3 og voru grasfrjó ríflega helmingur allra frjókorna (56%). Hlutfall birkifrjóa var 10%, súrufrjóa 2% og asparfrjóa 7% en um 17% frjókorna voru af ýmsum tegundum sem jafnan ber lítið á. Flest frjókorn voru í lofti í ágústmánuði

Í Garðabæ var fjöldi frjókorna 1.951 frjó/m3. Hlutfall grasfrjóa var það sama og á Akureyri, eða 56%. Hlutfall birkifrjóa var 6%, súrufrjóa 4% og asparfrjóa 2%. Frjókorn ýmissa tegunda sem jafnan ber lítið á var 23%. Flest frjókorn mældust í júlí.

Frjómælingar á Akureyri sumarið 2018

Frjómælingar í Garðabæ sumarið 2018