Rjúpnatalningar 2019

Rjúpnatalningum á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands vorið 2019 er lokið. Rjúpum fækkaði víðast hvar nema í lágsveitum á Norðausturlandi. Miðað við ástand stofnsins frá síðustu aldamótum er rjúpnafjöldinn 2019 mestur á Norðausturlandi í öðrum landshlutum er hann í eða undir meðaltali.

Reglubundnar sveiflur í stofnstærð sem taka 10 til 12 ár hafa einkennt íslenska rjúpnastofninn. Þessar sveiflur hafa breyst í kjölfar friðunar 2003 og 2004 og samdráttar í veiði frá 2005 og er nú mun styttra milli hámarka en áður.

Mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins og nánari greining á ástæðum fækkunar mun liggja fyrir í ágúst í kjölfar mælinga á afföllum rjúpna 2018 til 2019 og varpárangri í sumar.

Fréttatilkynning