Nýtt jarðfræðikort af Austurlandi

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur gefið út jarðfræðikort af Austurlandi í mælikvarða 1:100.000. Kortið nær yfir svæði sem afmarkast af norðanverðum Hamarsfirði í suðri, Loðmundarfirði í norðri, Skriðdal í vestri og Gerpi í austri.

Jarðfræðikort af Austurlandi er hið stærsta sem gefið hefur verið út í þessum mælikvarða utan gosbeltanna. Á því má meðal annars finna upplýsingar um útkulnaðar megineldstöðvar, eins og Breiðdalseldstöðina, Reyðarfjarðareldstöðina og Þingmúlaeldstöðina, gjóskulög sem tengjast sprengigosum á svæðinu og hraunsyrpur sem raktar eru þvert og endilangt um alla firðina. Á bakhlið kortsins er að finna ítarlegt jarðlagasnið og þemakort sem sýna dreifingu hrauntegunda, útbreiðslu bergganga, útbreiðslu síðsteinda og halla jarðlaga. Að auki er þar lesmál um áhugaverða staði á svæðinu. Kortið er að mestu byggt á eldri jarðfræðikortum sem til eru af svæðinu, einkum eftir breska jarðfræðinginn George P.L. Walker sem starfaði á Austurlandi á árunum 1954–1965. Höfundur kortsins er Birgir V. Óskarsson jarðfræðingur sem vann að kortlagningu svæðisins og tengingu eldri kortanna.

Prentað eintak af kortinu má kaupa í afgreiðslu Náttúrufræðistofnunar Íslands í Garðabæ. Það verður einnig fáanlegt í bókaverslunum innan tíðar. Að auki verður hægt að skoða það í kortasjá á vef stofnunarinnar fljótlega.