Rjúpnatalningar 2020

Rjúpnatalningum á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands vorið 2020 er lokið. Rjúpum fækkaði á Norðurlandi en fjölgaði í öðrum landshlutum.

Á Norðurlandi er rjúpnastofninn á niðurleið eftir hámark 2018, en á Suðvesturlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum virðist stofninn vera að ná hámarki og á Austurlandi er rjúpum að fjölga eftir nokkur mögur ár. Á Suðurlandi fjölgaði rjúpum eftir mikið fall 2017–2019. Reglubundnar sveiflur í stofnstærð sem taka 10 til 12 ár hafa einkennt íslenska rjúpnastofninn. Þessar sveiflur hafa breyst í kjölfar friðunar 2003 og 2004 og samdráttar í veiði frá 2005 og er nú mun styttra milli hámarka en áður og þetta er sérstaklega áberandi á Norðausturlandi. Miðað við ástand stofnsins frá síðustu aldamótum er rjúpnafjöldinn 2020 undir meðallagi á Norðausturlandi og Austurlandi en annars staðar um og yfir meðallagi.

Mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins og nánari greining á stofnbreytingum mun liggja fyrir í ágúst í kjölfar mælinga á afföllum rjúpna 2019 til 2020 og varpárangri í sumar.

Fréttatilkynning