Hrafnaþing: Fuglinn sem gat ekki flogið

Í erindinu mun Gísli gera grein fyrir nýútkominni bók sinni, Fuglinn sem gat ekki flogið, hvað hvatti hann til að skrifa hana, á hverju hann byggir frásögnina og hvaða erindi hún á við nútímann, svokallaða mannöld sem einkennist af vaxandi áhrifum mannsins á allt lífríkið, meðal annars fuglaheiminn.

Vegna takmarkana í tengslum við Covid-19 verður erindið eingöngu flutt í beinni útsendingu á Teams á netinu. Það hefst kl. 15:15 og því lýkur um kl. 16:00. 

Fyrirlesturinn á Teams