Frjókornamælingar hafnar

Elri er fyrst allra tegunda sem valda ofnæmi til að blómstra á vorin eða fljótlega eftir að hitastig fer upp fyrir 5°C. Elri er af sömu ætt og birki og hafa frjóin sömu ofnæmisvaka. Fólk með ofnæmi fyrir birkifrjói getur því fundið fyrir einkennum löngu áður en birkið blómgast ef það er í námunda við blómstrandi elri. Átta tegundir af elriættkvísl, Alnus, eru ræktaðar hér á landi, oftast sem stök tré í görðum. Elrifrjókorn mældust í litlu magni upp úr miðjum mars, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri, en þá var óvenju hlýtt á landinu í rúma viku.

Lyng- og víðifrjó eru, auk elrifrjókorna, snemma á ferðinni og þeirra varð vart í seinnihluta marsmánaðar. Frjótölur þeirra eru þó alla jafnan ekki háar vegna þess að þau dreifast aðallega með skordýrum. Lyng- og víðifrjó eru þekktir ofnæmisvaldar en ekki eins skæðar og birki eða elri, sem eru nær eingöngu vindfrævuð.

Asparfrjó, sem geta valdið ofnæmi, birtast í maí. Birki blómgast venjulega um og eftir miðjan maí. Á Norðurlöndunum blómgast það í apríl og dæmi eru um að frjókorn þaðan, að því talið er, hafi mælst hér á landi áður en íslenska birkið er byrjað að dreifa frjóum sínum. Birki er einn skæðasti ofnæmisvaldur á Norðurlöndunum. Grasfrjó byrja að mælast í júní og er skæðasti ofnæmisvaldur Íslandi.

Í sumar verður hægt að fylgjast með mælingum á birki- og grasfrjóum á vef stofnunarinnar. Birkifrjómælingar birtast að minnsta kosti vikulega í maí og júní og grasfrjómælingar að lágmarki vikulega í júní til september. Mælingarnar er gott að nota sem viðmið um hvenær blómgun tegundanna hefst og geta þær, ásamt veðurspám, hjálpað þeim sem eru haldnir ofnæmi að spá fyrir um frjómagn. Ef veður er hlýtt, þurrt og smá vindur má búast við háum frjótölum hjá blómstrandi tegundum sem dreifa frjóum sínum með vindi.

Á vefnum er einnig að finna frjóalmanak og samantekt frjómælinga.

Nokkur ráð til þeirra sem eru með frjókornaofnæmi

  • Forðast að fara út þar sem er mikið af birki og óslegnu grasi. Gras dreifir helst frjóum sínum snemma morguns (kl. 7–10) og seinnipart dags (kl. 16–19)
  • Ekki þurrka þvott utandyra
  • Sofa við lokaðan glugga
  • Slá grasið áður en það blómgast
  • Skipta um föt og þvo hárið eftir að hafa verið nálægt frjódreifingu
  • Nota sólgleraugu og höfuðföt
  • Bursta og þvo feld heimilisdýra
  • Aka um með lokaða glugga og hafa góða frjókornasíu í loftræstingunni
  • Taka lyf samkvæmt læknisráði