Talningar á grágæsum

Grágæs.
Grágæsir verða taldar hér á landi og á vetrarstöðvum á Bretlandseyjum 27.–28. nóvember 2021. Náttúrufræðistofnun Íslands óskar eftir upplýsingum um allar gæsir sem vart verður við næstu daga og hvenær sást síðast fugla á gæsaslóðum.
Um áratugaskeið hafa gæsir verið taldar á vetrarstöðvum á Bretlandseyjum. Næstu helgi beinast talningar að grágæs. Náttúrufræðistofnun Íslands óskar eftir að fá upplýsingar um grágæsir sem fólk verður vart við á næstu dögum, þar á meðal eins nákvæmar staðsetningar og unnt er og mat á fjölda fugla. Upplýsingarnar verða sendar samstarfsaðilum á Bretlandseyjum sem taka saman árlegar skýrslur um talningarnar.
Í nóvember 2020 fundust hér á landi um 13.000 grágæsir.
Vinsamlega sendið upplýsingar til Svenju N.V. Auhage hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, einnig tekur Arnór Þ. Sigfússon hjá Verkís á móti upplýsingum.