13. maí 2020. Birna Lárusdóttir: Örnefni í Surtsey

13. maí 2020. Birna Lárusdóttir: Örnefni í Surtsey

Birna Lárusdóttir fornleifafræðingur, sem situr í rannsóknarstöðu við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum flytur erindi á Hrafnaþingi miðvikudaginn 13. maí 2020 kl. 15:15.

Í fyrirlestrinum verður sagt frá för fornleifafræðings með árlegum leiðangri líffræðinga til Surtseyjar sumarið 2019. Surtsey, sem er stundum kölluð yngsta land í heimi, er á heimsminjaskrá UNESCO vegna einstakra skilyrða til að skoða framgang lífs og landmótunar án áhrifa mannsins og helsti tilgangur ferða út í Surtsey er að fylgjast með þróun jarðmyndana, gróðurfars og dýralífs. Að þessu sinni var einnig reynt að varpa ljósi á menningarsögu staðarins og þátt mannsins í landnámi og mótun hins nýja eylands, fyrst og fremst með því að skoða örnefni, en fágætt er að hægt sé að rannsaka nafngiftir í nýju landi allt frá upphafi. Sagt verður frá nöfnum og ýmsu sem hefur áhrif á þau, hvernig þau hafa orðið til, skotið rótum eða ekki og endurspegla með ýmsum hætti hvers konar staður Surtsey er.