16. október 2019. Ester Rut Unnsteinsdóttir: Kortlagning spendýra í Evrópu

Ester Rut Unnsteinsdóttir spendýravistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands flytur erindi á Hrafnaþingi miðvikudaginn 16. október 2019 kl. 15:15.

Fyrsta alfræðibókin (Atlas) um evrópsk spendýr var gefin út árið 1999 og er hún löngu uppseld og nánast ófáanleg meðal safnara. Mikið hefur verið vitnað í þessa bók og eru til dæmis 450 tilvísanir í hana í vísindagreinum sem skráðar eru á Web of Science. Gögn úr bókinni hafa jafnframt verið notuð víða, meðal annars til að útbúa útbreiðslukort fyrir spendýr og við aðra úrvinnslu.

Nú eru liðin ríflega 20 ár síðan gögnum um evrópsk spendýr var safnað, þegar unnið var að útgáfu bókarinnar. Ljóst er að útbreiðsla margra dýra gæti hafa breyst og því endurspegla gögnin ekki lengur raunverulega útbreiðslu og stöðu spendýrastofna Evrópu. Með þetta í huga kom ritstjórn bókarinnar saman árið 2015 til að ræða hvort ekki væri grundvöllur fyrir endurútgáfu bókarinnar. Í fyrstu var einungis hugsað um endurmat á því svæði sem kortlagt var í fyrstu útgáfunni en síðar var ákveðið að í nýrri útgáfu yrði öll Evrópa kortlögð.

Með kortlagningu spendýra í allri Evrópu tvöfaldast umfang kortlagðra svæða og munar þá mestu um að nú bætast við fyrrum Sovétríkin, meðal annars Rússland. Stór hluti svæðisins hefur ekki verið kortlagður áður á þennan hátt og því mikið verk framundan. Þannig voru 194 tegundir spendýra kortlagðar á 6.675.000 ferkílómetra svæði í fyrstu útgáfu bókarinnar en í annarri útgáfu verður fjallað um yfir 260 tegundir á 11.442.500 ferkílómetra svæði. Evrópska spendýrafélagið hefur því hvatt til þátttöku almennings og sett af stað allsherjar söfnunarátak til að hægt sé að ljúka við að kortleggja og skrá útbreiðslu spendýra í allri Evrópu. Hægt er að lesa um átakið á vefnum European Mammals on Maps

Í erindinu verður sagt frá þessu metnaðarfulla verkefni og hvernig þátttaka almennings og samtakamáttur hefur haft áhrif á framvindu þess. Allt bendir til þess að hægt verði að standa við tímaáætlanir og að önnur útgáfa af Atlas um evrópsk spendýr komi í verslanir fyrir árslok 2024.

Fyrirlesturinn á Youtube