19. október 2011. Sigmundur Einarsson: Verndun jarðminja

19. október 2011. Sigmundur Einarsson: Verndun jarðminja

Sigmundur Einarsson jarðfræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands flytur erindið „Verndun jarðminja“ á Hrafnaþingi 19. október 2011 kl. 15:15.

Farið verður yfir stöðu jarðminja í náttúruvernd á Íslandi og jafnframt rakin hnignun jarðminja í landinu frá landnámsöld til okkar tíma. Fjallað verður um verndun jarðminja á Íslandi og kynntar hugmyndir um flokkunaraðferð sem hentar íslenskum aðstæðum og ætlað er að einfalda mönnum yfirsýn. Jafnframt verður skoðað hvernig farið er með mikilvægar jarðminjar í samfélagi nútímans, reynt að skoða orsakirnar og hvað er til ráða. 

Fyrirlesturinn á Youtube