Eyðihraunavist
Eyðihraunavist
L6.1
Eunis-flokkun
H6.241 Barren Icelandic lava fields.
Eyðihraunavist

Eyðihraunavist í Suðurárhrauni sunnan Svartárvatns við Skjálfandafljót. Hraunið er gróðurlítið og sandorpið. Túnvingull er ríkjandi en einnig er nokkuð af beitieski og lambagrasi. Gróðursnið S23-3. – Barren lava field in northeastern highlands.

Eyðihraunavist í Kvíslahrauni (Illviðrahnjúkahrauni) vestan við Illviðrahnjúka á Hofsafrétti. Gróðurþekja mjög lítil. Algengustu tegundir æðplantna eru lambagras, melablóm og fjallasveifgras. Gróðursnið HHR10. – Barren lava field in northern highlands.
Lýsing
Lítt gróin, gropin hraun, frá nútíma. Hraunin eru yfirleitt hallalítil helluhraun eða apalhraun, sums staðar sand- og vikurorpin. Stöðugleiki er misjafn og ræðst af sandi og vikri á yfirborði. Gróðurþekja er breytileg en að jafnaði mjög lítil. Gróður er lágvaxinn frumherjagróður þar sem æðplöntur, mosar og fléttur hafa áþekka þekju.
Plöntur
Vistgerðin er fremur fátæk af tegundum æðplantna og mosa en frekar rík af fléttutegundum. Af æðplöntum finnst mest af blóðbergi (Thymus praecox ssp. arcticus), lambagrasi (Silene acaulis) og geldingahnappi (Armeria maritima). Algengastir mosa eru holtasóti (Andreaea rupestris), hraungambri (Racomitrium lanuginosum) og snúinskeggi (Grimmia funalis) en algengustu fléttur eru hraunbreyskja (Stereocaulon vesuvianum), grásnuðra (Lecidea lapicida), fölvakarta (Porpidia melinodes) og landfræðiflikra (Rhizocarpon geographicum).
Jarðvegur
Er mjög grunnur, klapparjörð eða sandjörð með mjög lágt kolefnisinnihald og frekar hátt sýrustig.
Fuglar
Strjált og fábreytt fuglalíf, heiðlóa (Pluvialis apricaria), spói (Numenius phaeopus), steindepill (Oenanthe oenanthe) og snjótittlingur (Plectrophenax nivalis) algengust.
Líkar vistgerðir
Eyðimelavist, grasmelavist og fléttuhraunavist.
Útbreiðsla
Finnst á ungum, lítt grónum hraunum og eldri hraunum þar sem gróðurframvinda er hæg vegna sandfoks.
Verndargildi
Lágt. Vistgerðin er á lista Bernarsamningsins frá 2014 yfir vistgerðir sem þarfnast verndar.

Eyðihraunavist er lítt útbreidd en hún finnst í 18% landsreita. Flatarmál hennar reiknast um 4.400 km2, óvissa er fremur lítil. – The habitat type is uncommon in Iceland and is found within 18% of all grid squares. Its total area is estimated 4,400 km2.

Gróðurþekja æðplantna, mosa og fléttna. Sýnd eru meðaltöl fyrir heildarþekju og þekju ±staðalskekkja. Innan sviga er fjöldi mælinga. Grænar súlur sýna spönn allra vistgerða á landi. – Average total % cover of all plant groups (Heild), vascular plants (Æðplöntur), bryophytes (Mosar) and lichens (Fléttur), shown with lines and numbers ± s.e., n within brackets; bars indicate range for all habitat types.
Tegundafjöldi á sniðum. Sýnd eru meðaltöl fyrir fjölda tegunda æðplanta, mosa og fléttna ±staðalskekkja (lóðrétt strik). Innan sviga er fjöldi mælinga. Grænar súlur sýna spönn fyrir allar vistgerðir. – Average species richness of vascular plants, bryophytes and lichens, shown with lines and numbers ± s.e., n within brackets; bars indicate range for all habitat types.
Raki í jarðvegi. Sýnd er tíðni rakaflokka; forblautt, blautt, deigt og þurrt. Innan sviga er fjöldi mælinga. – Soil moisture classes %, n within brackets; classes are Very wet (Forblautt), Wet (Blautt), Moist (Deigt) and Dry (Þurrt).
Ríkjandi tegundir og tegundahópar í vistgerðinni. Sýnd er þekja og röð. – Order and % cover of dominant species.
Ýmsar niðurstöður: Gróðurhæð (Gh); Jarðvegsþykkt (Jþ); Kolefni í jarðvegi (C%); Sýrustig í jarðvegi (pH); Halli lands (H); Grýtniþekja (Gr). Sýnd eru meðaltöl ±staðalskekkja (lóðrétt strik). Innan sviga er fjöldi mælinga. Skyggðar súlur sýna spönn viðkomandi breytu fyrir allar vistgerðir. – Various results: Average vegetation height (Gh) and soil depth (Jþ), soil carbon (C%) and pH, land slope (H) and surface rocks (Gr) shown with lines and numbers ± s.e., n within brackets; bars indicate range for all habitat types.