Fléttuhraunavist
Fléttuhraunavist
L6.2
Eunis-flokkun
Nýr flokkur, tillaga. E4.241 Icelandic lava field lichen heaths.
Fléttuhraunavist

Fléttuhraunavist í Varmárdal í Skaftáreldahrauni á Síðumannaafrétti. Allvel gróið land. Gamburmosar eru ríkjandi en breyskjufléttur og lífræn jarðvegsskán hafa einnig mikla þekju. Af æðplöntum er grasvíðir þekjumestur. Gróðursnið L01-2. – Moss and lichen dominated lava field in southern highlands.

Fléttuhraunavist á 1100–2900 ára gömlu hrauni norðaustur af Öskju. Allvel gróið hraun með breyskjufléttum, lífrænni jarðvegsskán og grasvíði. Gróðursnið 2016-NA5-04. – Moss and lichen dominated lava field in northeastern highlands.
Lýsing
Lítið til allvel gróin, hallalítil apal- og helluhraun, að mestu laus við foksand og vikur á yfirborði. Gróður er mjög lágvaxinn (<5 cm) og einkennist af breyskjufléttum (Stereocaulon sp.) og lífrænni jarðvegsskán (mest hélumosi) sem gefur hraununum sérstaka ásýnd. Vistgerðin finnst bæði á úrkomumiklum svæðum á sunnanverðu landinu þar sem mosarnir melagambri (Racomitrium ericoides) og hraungambri (R. lanuginosum) eru áberandi í þekju og á þurrari svæðum norðanlands þar sem breyskjufléttur og lífræn jarðvegsskán ríkja. Æðplöntuþekja er gisin.
Plöntur
Vistgerðin er frekar fátæk af æðplöntutegundum en mjög rík af mosum og fléttum. Af æðplöntum er mest um grasvíði (Salix herbacea) en algengastir mosa eru heiðahéla (Anthelia juratzkana), melagambri (Racomitrium ericoides), hraungambri (R. lanuginosum), grænkólfa (Gymnomitrion concinnatum), lautalápur (Lophozia sudetica) og urðalápur (L. ventricosa). Algengustu fléttur eru vikurbreyskja (Stereocaulon arcticum), hraunbreyskja (S. vesuvianum), ryðkarta (Porpidia flavicunda) og skarlatbikar (Cladonia borealis).
Jarðvegur
Er grunnur, klapparjörð er ráðandi en einnig finnst sandjörð. Kolefnisinnihald fremur lágt og sýrustig í meðallagi.
Fuglar
Fábreytt fuglalíf, snjótittlingur (Plectrophenax nivalis) og heiðlóa (Pluvialis apricaria) algengust, einnig steindepill (Oenanthe oenanthe) og rjúpa (Lagopus mutus).
Líkar vistgerðir
Engar.
Útbreiðsla
Finnst á ungum hraunum sunnanlands þar sem framvinda er skammt á veg komin og á hraunum inn til landsins norðanlands þar sem úrkoma er lítil.
Verndargildi
Miðlungs.

Fléttuhraunavist er fágæt en hún finnst í 10% landsreita. Flatarmál hennar reiknast um 650 km2, óvissa er fremur lítil.– The habitat type is rare in Iceland and is found within 10% of all grid squares. Its total area is estimated 650 km2.

Gróðurþekja æðplantna, mosa og fléttna. Sýnd eru meðaltöl fyrir heildarþekju og þekju ±staðalskekkja. Innan sviga er fjöldi mælinga. Grænar súlur sýna spönn allra vistgerða á landi. – Average total % cover of all plant groups (Heild), vascular plants (Æðplöntur), bryophytes (Mosar) and lichens (Fléttur), shown with lines and numbers ± s.e., n within brackets; bars indicate range for all habitat types.
Tegundafjöldi á sniðum. Sýnd eru meðaltöl fyrir fjölda tegunda æðplanta, mosa og fléttna ±staðalskekkja (lóðrétt strik). Innan sviga er fjöldi mælinga. Grænar súlur sýna spönn fyrir allar vistgerðir. – Average species richness of vascular plants, bryophytes and lichens, shown with lines and numbers ± s.e., n within brackets; bars indicate range for all habitat types.
Raki í jarðvegi. Sýnd er tíðni rakaflokka; forblautt, blautt, deigt og þurrt. Innan sviga er fjöldi mælinga. – Soil moisture classes %, n within brackets; classes are Very wet (Forblautt), Wet (Blautt), Moist (Deigt) and Dry (Þurrt).
Ríkjandi tegundir og tegundahópar í vistgerðinni. Sýnd er þekja og röð. – Order and % cover of dominant species.
Ýmsar niðurstöður: Gróðurhæð (Gh); Jarðvegsþykkt (Jþ); Kolefni í jarðvegi (C%); Sýrustig í jarðvegi (pH); Halli lands (H); Grýtniþekja (Gr). Sýnd eru meðaltöl ±staðalskekkja (lóðrétt strik). Innan sviga er fjöldi mælinga. Skyggðar súlur sýna spönn viðkomandi breytu fyrir allar vistgerðir. – Various results: Average vegetation height (Gh) and soil depth (Jþ), soil carbon (C%) and pH, land slope (H) and surface rocks (Gr) shown with lines and numbers ± s.e., n within brackets; bars indicate range for all habitat types.