Frjókornaspá

Frjókornaspár fyrir Akureyri og höfuðborgarsvæðið eru uppfærðar alla virka daga fram til septemberloka en þá lýkur frjótímabilinu hér á landi. Við gerð frjókornaspár eru frjómælingagögn og nýjasta veðurspá notuð til að áætla hversu mikið af frjókornum má búast við næstu dagana. Magn frjókorna er flokkað í flokkana: „ekkert“, „lítið“, „miðlungs“ eða „hátt“. Spáin segir til um hvaða frjókorna má vænta í andrúmsloftinu  og hver væntanleg þróun í fjölda þeirra er.

Smellið á tvíátta ör neðst í hægra horni til að stækka grafið.

Með frjókornaspám geta þeir sem þjást af frjóofnæmi forðast frjókorn þegar þau eru í mestu magni, tekið inn fyrirbyggjandi lyf, skipulagt útivist á þeim tímum sem frjókornagildi eru lág, forðast staði þar sem líklegt er að frjókorn séu í miklu magni og í verstu tilvikum að halda sig innandyra.

Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir að frjókornaspár eru takmarkaðar því margar breytur geta haft áhrif á magn frjókorna í lofti, þar á meðal tími dags, skyndilegar veðurbreytingar og uppspretta frjókorna. Frjókorn í lofti geta ferðast um langa leið og fjöldi og samsetning þeirra getur verið mjög mismunandi á ólíkum stöðum. Samsetning og fjöldi frjókorna getur haft mismunandi áhrif á einstaklinga eftir alvarleika ofnæmis og almennum heilsufarslegum aðstæðum. Engu að síður er meginmarkmið frjókornaspár að gera þeim sem þjást af frjóofnæmi kleift  að gera ráðstafanir til að vernda sig þegar frjókorn eru í miklu magni í lofti.

Nánar um frjókornofnæmisvalda og frjómælingar.