Siglunes–Skor–Melanes
SF-V 11
Hnit – Coordinates: N65,41100, V23,87900
Sveitarfélag – Municipality: Vesturbyggð
IBA-viðmið – Category: A4iii
Stærð – Area: 2.767 ha (með verndarjaðri – with buffer zone)
Sigluneshlíðar og Skorarhlíðar liggja á milli Sigluness, vestasta bæjar á Barðaströnd og Melaness á Rauðasandi. Þær eru skriðurunnar, sums staðar með miklum hamrabeltum, og yfirleitt um 400 m y.s. Á þessu svæði er alþjóðlega mikilvæg sjófuglabyggð (≥10.000 pör), langmest fýll (9.509 pör), en einnig rita (315 pör), hvítmáfur (hundruð para áður fyrr) og nokkuð af dílaskarfi og svartbaki.
Helstu varpfuglar á svæðinu Siglunes–Skor–Melanes – Key bird species breeding in Siglunes–Skor–Melanes
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (pör) Number (pairs) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|---|---|---|---|---|---|
Fýll1 | Fulmarus glacialis | Varp–Breeding | 9.509 | 2014 | 0,8 | |
Rita2 | Rissa tridactyla | Varp–Breeding | 315 | 2006 | 0,1 | |
Alls–Total | 9.824 | A4iii | ||||
¹Arnþór Garðarsson, Kristján Lilliendahl og Guðmundur A. Guðmundsson 2019. Fýlabyggðir á Íslandi 2013–2015. Bliki 33: 1–14. ²Arnþór Garðarsson, Guðmundur A. Guðmundsson og Kristján Lilliendahl 2013. Framvinda íslenskra ritubyggða. Bliki 32: 1–10. |
English summary
Siglunes–Skor–Melanes are steep coastal mountain slopes in NW-Breiðafjörður, W-Iceland, holding internationally important seabird numbers (≥10,000 pairs), mostly Fulmarus glacialis (9,509 pairs) and Rissa tridactyla (315 pairs).