Skeifárfoss

Svæðið er tilnefnt vegna jarðminja, nánar tiltekið fossa. Það er innan tillögusvæða á Tjörnesi, sem tilnefnd eru vegna fugla annars vegar og jarðminja hins vegar.

Mörk

Mörk miðast við fossinn sjálfan sem nær fram í fjöru, yfir hamrana við fossinn og gilið ofan fossins.

Stærð

0,17 km2

Lýsing

Skeifá er vatnslítil á sem fellur um gróinn og bugðóttan eldri farveg sinn fram í Skjálfandaflóa. Í henni, á milli bæjanna Hringvers og Tunguvalla, er Skeifárfoss, allhár og breiður slæðufoss sem fellur fram af setbergshömrum sem myndaðir eru úr Tjörneslögunum. Hamrarnir eru sorfnir af brimi þegar sjávarstaða var hærri en í dag er fellur fossinn nálægt ströndinni. Tjörneslögin eru mikilvægur fundarstaður steingervinga og einstök heimild um umhverfisbreytingar í aðdraganda ísaldar. Þau eru jafnframt lykilsvæði í jarðsögu Íslands og svæða við Norður-Atlantshaf.

Flokkun

Grunnflokkur: Virk ferli landmótunar

Flokkur: Vatnafar og jöklar

Gerð: Fossar, rofsfossar

Forsendur fyrir vali

Fallegur foss á svæði sem hefur alþjóðlegt verndargildi vegna jarðminja á Tjörnesi. Sambærileg jarðlög er ekki að finna annars staðar á landinu.

Ógnir

Mannvirkjagerð, t.d. vegagerð, sem breytt getur rennsli um árfarveg Skeifár. Ágengar tegundir.

Aðgerðir til verndar

Tryggja þarf að Skeifá renni áfram óhindrað til sjávar og að ekki verði farið í neinar framkvæmdir við fossinn sem geta spillt ásýnd hans. Einnig þarf að tryggja að rennsli Skeifár verði ekki skert.

Núverandi vernd

Aðrar náttúruminjar Nr.
Tjörneslögin og Voladalstorfa 530

Kortasjá

Skeifárfoss í kortasjá

Útgáfudagsetning

3. desember 2020.