Núpsstaðaskógur
Núpsstaðaskógur
Svæðið er tilnefnt vegna vistgerða á landi.
Núpsstaðaskógur


Úr Núpsstaðaskógi.
Mörk
Svæði inn með eyrum og gljúfri Núpsár. Suðurmörk um Skollastígsgil að vestan og Valabjörg að austan, fylgir síðan brekkubrúnum inn fyrir Skessutorfur að Skessutorfugljúfri.
Stærð
15,7 km2
Hlutfall lands: 97%
Hlutfall fersks vatns: 3%
Svæðislýsing
Núpsstaðaskógur er í landi Núpsstaðar sem er austasti bær í Skaftárhreppi og stendur við Lómagnúp. Núpsá fellur niður með núpnum að austan og er skógurinn í árgili sem sker sig norður í heiðalandið. Aðfluttum skógartrjám hefur ekki verið plantað á svæðinu og lúpína finnst þar ekki. Skógur nýttur á fyrri tíð og fé gekk þar árið um kring. Vinsælt og vaxandi útivistarsvæði og einhver uppbygging og aðstaða fyrir ferðamenn fyrirhugð.
Forsendur fyrir vali
Lítt snortinn og allstór birkiskógur með fjölbreyttum gróðri í svipmiklu landslagi. Beggja vegna gilsins sem Núpsá rennur um eru skógartorfur með háum trjám í hvömmum og neðan til í brekkum, en lágvaxnara kjarr ofar í brekkum og inn með gilinu.
Vistgerðir
Vistgerð | Km2 | % af heildarflatarmáli | |
---|---|---|---|
Land | Skóglendi* | 4,57 | <1 |
*Kjarrskógavist, Lyngskógavist, Blómskógavist |
Ógnir
Umferð ferðamanna og uppbygging aðstöðu, hætta á að framandi tegundir (einkum alaskalúpína) berist inn á svæðið.
Aðgerðir til verndar
Eftirlit og reglur um umferð ferðamanna og uppbygging aðstöðu. Koma í veg fyrir að framandi tegundir berist inn á svæðið og breiðist þar út.
Núverandi vernd
Aðrar náttúruminjar | Númer |
---|---|
Núpsstaður, Núpsstaðarskógar og Grænalón | 701 |
Kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018.