Sauðholtsnes
Sauðholtsnes
Svæðið er tilnefnt vegna vistgerða á landi.
Sauðholtsnes


Sauðholtsnes.
Mörk
Víðáttumikið votlendissvæði austur af Þjórsá í Ásahreppi, að Steinslæk, norðurmörk sunnan ræktarlands jarða uppi í holtunum þar norður af, suðurmörk við útfall Steinslækjar í Þjórsá.
Stærð
17,7 km2
Hlutfall lands: 99%
Hlutfall fersks vatns: 1%
Svæðislýsing
Framræst mýrlendi, fremur heillegt með mýragróðri, ríkulegt fuglalíf. Sandeyrar við Þjórsá. Landbúnaður er á jörðum í nágrenninu. Einhver búfjárbeit er á svæðinu.
Forsendur fyrir vali
Stórt heillegt mýrlendi á svæði þar sem mýrum hefur mjög verið raskað með framræslu og teknar til ræktunar. Forgangsvistgerðir á svæðinu eru starungsmýravist og runnamýravist á láglendi
Vistgerðir
Vistgerð | Km2 | % af heildarflatarmáli | |
---|---|---|---|
Land | Runnamýravist á láglendi | 1,37 | <1 |
Land | Starungsmýravist | 2,50 | <1 |
Ógnir
Framræsla og búfjárbeit.
Aðgerðir til verndar
Frekari framræsla verði ekki á svæðinu, endurheimt votlendis þar sem landnýting leyfir og stilla hrossabeit í hóf.
Núverandi vernd
Aðrar náttúruminjar | Númer |
---|---|
Sauðholtsnes | 729 |
Kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018, uppfært 26. maí 2020.