Svartárbotnar
Svartárbotnar
Svæðið er tilnefnt vegna ferskvatnsvistgerða.
Svartárbotnar


Svartárbotnar.
Mörk
Lindasvæði við upptök Svartár á Kili. Er austan við Vestur-Svartárbotna og norðvestan við Fossrófur.
Stærð
0,18 km2
Hlutfall lands: 100%
Svæðislýsing
Kaldar lindir sem koma undan Kjalhrauni. Ýmsar mólendisvistgerðir og hrossanál einkennandi. Útivist er stunduð, m.a. hestaferðir, og á svæðinu er skáli fyrir göngu- og hestamenn.
Forsendur fyrir vali
Lindarvatnið sem rennur í Svartá á Kjalvegi kemur undan Kjalhrauni og í því er að finna bæði grunnvatnsmarflær og dvergbleikju.
Vistgerðir
Vistgerð | Km2 | % af heildarflatarmáli | |
---|---|---|---|
Ferskvatn | Kaldar lindir | 0,02 | 9 |
Ógnir
Ferðamennska.
Aðgerðir til verndar
Tryggja vernd vistgerða. Til að ná fram skilvirkri vernd vatnavistgerða þarf að tryggja að jaðarsvæðum þeirra sé ekki raskað í að minnsta kosti 100 m fjarlægð frá þeim.
Núverandi vernd
Engin.
Kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018, uppfært 26. maí 2020.