Vöktun fiðrilda
Vöktun fiðrilda
Tímamörk
Langtímaverkefni frá 1995
Samstarfsaðilar
Náttúrustofur Austurlands, Norðausturlands, Norðvesturlands, Suðausturlands, Suðurlands, Vesturlands og Suðvesturlands, auk Landbúnaðarháskóla Íslands og einstaklinga.
Um verkefnið – Markmið og verkþættir
Aflað er upplýsinga um fiðrildafánu landsins sem er undir áhrifum af breyttu veðurfari vegna hlýnunar, breytinga á gróðurfari og náttúruhamförum eins og eldgosi. Stofnar fiðrildanna rísa og hníga eftir árferði hverju sinni, nýjar tegundir nema land og breiðast út. Einnig er fylgst með flækingum sem berast til landsins með vindum. Ljósgildrur eru notaðar til að lokka fiðrildin. Þær eru tæmdar vikulega í alls 30 vikur á ári, fiðrildin greind til tegunda og talin.
Vöktun fer fram á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands á Tumastöðum í Fljótshlíð, Mógilsá í Kollafirði, Rauðafelli og Skógum undir Eyjafjöllum. Vöktunarstöðvar á Kvískerjum og Skaftafelli í Öræfum hafa verið aflagðar. Á vegum samstarfsaðila fer fram vöktun á Austurlandi (Hallormsstaður, Jökuldalur, Neskaupstaður), á Norðausturlandi (Ás, Skútustaðir), Vestfjarðakjálka (Bolungarvík, Stakkamýri, Þiðriksvalladalur), Suðausturlandi (Höfn, Mörtunga), Suðurlandi (Stórhöfði), Vesturlandi (Gufuskálar, Hvanneyri, Stykkishólmur) og Suðvesturlandi (Norðurkot á Miðnesi).
Vöktun fiðrilda

Vöktunarstaðir fiðrilda á Íslandi
Nánari upplýsingar
Niðurstöður
Fiðrildavöktun ársins lokið (NÍ-frétt 15.11.2016)
Erling Ólafsson og Hálfdán Björnsson 1997. Fiðrildi á Íslandi 1995 (pdf, 1,9 MB). Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 32. Reykjavík: Náttúrufræðistofnun Íslands.
Tengiliður
Erling Ólafsson, skordýrafræðingur