Hagamýs í Vestmannaeyjum

Hagamús hefur nýverið numið land í Vestmannaeyjum. Fram til þessa höfðu þar einungis verið húsamýs.

Hagamús (Apodemus sylvaticus) er algeng og útbreidd nagdýrategund sem að öllum líkindum kom til Íslands með landnámsmönnum á 10. öld og hefur verið hér síðan. Ísland er á útmörkum útbreiðslusvæðis tegundarinnar til norðurs og vesturs. Þrjár aðrar nagdýrategundir lifa á Íslandi, húsamýs (Mus muculus) sem einnig komu til landsins með landnámsmönnum, brúnrottur (Rattus norvegicus) sem komu til landsins á 18. öld og svartrottur (R. rattus) í upphafi 20. aldar. Svartrotta lifir í Vestmannaeyjum en þar finnast hinsvegar ekki brúnrottur. Húsamús og báðar rottutegundirnar finnast nær eingöngu í eða við athafna- og búsvæði mannsins en hagamúsin finnst í gróðurlandi um allt land, utan athafnasvæði manna. Á þessu er ein merkileg undantekning því húsamýs lifa utandyra í náttúrulegu umhverfi í Vestmannaeyjum, þar sem aldrei hafa verið hagamýs svo vitað sé – fram til þessa.

Haustið 2022 bárust Náttúrufræðistofnun Íslands myndir af músum sem veiddust í heimahúsi í Vestmannaeyjum. Á myndunum sjást bæði húsamýs og hagamýs. Þetta þótti til tíðinda enda hefur það verið alkunna að í Vestmannaeyjum séu eingöngu húsamýs en engar hagamýs. Þegar fréttir bárust síðan af meintri hagamús sem veidd var í heimahúsi í Heimaey þann 26. október síðastliðinn óskaði Náttúrufræðistofnun Íslands eftir því að fá hræið  til greiningar. Í ljós kom að um fullorðna karlkyns hagamús var að ræða og er hún nú varðveitt á vísindasafni stofnunarinnar.

Samkvæmt upplýsingum frá Ásmundi Ásmundssyni meindýraeyði í Vestmannaeyjum, sem heldur skrá yfir veidd nagdýr í Heimaey, veiddist fyrsta hagamúsin árið 2020 á suðurhluta eyjarinnar. Hagamús hefur þó líklega veiðst árið 2019 án þess að hún hafi verið greind til tegundar. Eftir þetta hafa hagamýs veiðst í jaðri nýja hraunsins á austurhluta eyjarinnar og í Herjólfsdal vestanmegin byggðarinnar. Ásmundur telur að hagamýs séu nú útbreiddar um alla Heimaey.

Þar sem húsamýs hafa lifað í náttúru Vestmannaeyja frá landnámi og aðlagast umhverfinu þar án samkeppni við hagamús í um þúsund ár má segja að komið sé upp einstakt tækifæri til að fylgjast með tegundunum tveimur og samkeppni þeirra á milli, sérstaklega hvort önnur tegundin muni hopa og hin taka yfir. 

Í tengslum við verkefnið „vöktun náttúruverndarsvæða“ sem unnið er að hjá Náttúrufræðistofnun Íslands í samstarfi við náttúrustofur landshlutanna hefur reglubundin vöktun á hagamúsum verið sett á áætlun. Búið er að kaupa fyrstu lífgildrurnar sem verða staðsettar hjá Náttúrustofu Austurlands og Náttúrustofu Suðvesturlands. Gert er ráð fyrir að veiðar hefjist næsta haust á þessum tveimur landsvæðum og að fleiri svæði bætist við í framhaldinu. Í ljósi nýrrar útbreiðslu tegundarinnar er ekki ólíklegt að gildrur verði settar upp í Vestmannaeyjum.  

Hagamús

Húsamús