Birkifrjókornatímabilið að hefjast

Frjótími birkis er að nálgast og gæti hafist nokkru fyrr en venjulega í ár. Spár gera ráð fyrir að birkifrjókorn fari að mælast í andrúmslofti á næstu dögum, sérstaklega ef veður helst hlýtt og þurrt.

Fólk með frjókornaofnæmi fyrir birki ætti að hafa þetta í huga og vera viðbúið snöggum hækkunum á frjókornagildi. Mikilvægt er að fylgjast með frjókornaspám og grípa til viðeigandi ráðstafana til að takmarka snertingu við frjókorn á dögum þar sem styrkur þeirra er mikill.

Þeir sem eru með ofnæmi fyrir birkifrjókornum ættu einnig að hafa í huga svokallað munnofnæmi (oral allergy syndrome), sem er getur komið fram við neyslu hrárrar fæðu sem inniheldur svipaðar próteinsameindir og birkifrjókorn. Algeng einkenni eru kláði í munni, vörum eða hálsi og geta hráir ávextir, grænmeti og hnetur, til dæmis epli, ferskjur, kíví, heslihnetur og möndlur, ýtt undir slík viðbrögð en nær hvaða hrá planta sem er getur valdið einkennum á borð við kláða í munni, vörum eða hálsi.

Náttúrufræðistofnun hvetur fólk til að fylgist með frjómælingum næstu daga og nýta upplýsingar sem birtar eru reglulega á vefnum.