Bókasafn

Bókasafn Náttúrufræðistofnunar Íslands er sérfræðisafn á sviði náttúruvísinda og er staðsett bæði í Garðabæ og á Akureyri. Tilgangur þess er að þjóna starfsfólki stofnunarinnar og að koma upp aðgengilegu safni heimilda um náttúru Íslands. Bókasafnið er opið almenningi sem getur gluggað í bækur og tímarit á staðnum en útlán eru einungis afgreidd til starfsfólks og annarra bókasafna. Afgreiðslutími er á sama tíma og afgreiðslutími stofnunarinnar en nauðsynlegt er að gera boð á undan sér til að tryggja viðveru safnstjóra.

Bókasafnið telur um 12.000 bókatitla og 450 tímarit og ritraðir berast reglulega. Einnig er að finna í safninu 35.000 sérprentanir með helstu ritgerðum um íslenska fugla, jarðfræði Íslands og grasafræði, og um 2.500 kort.

Bækur og tímarit bókasafnsins eru skráð í Leitir.is, sem hýsir landskerfi íslenskra bókasafna ásamt öðrum gagnasöfnum, þar á meðal Landsaðgang að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum, Hvar.is, en Náttúrufræðistofnun tekur virkan þátt í honum. 

Ritaskrár fyrrverandi starfsfólks.

Netfang bókasafnsins er bokasafn@ni.is.