Melrakkaslétta
FG-N 4
Hnit – Coordinates: N66,44688, V16,23508
Sveitarfélag – Municipality: Norðurþing, Svalbarðshreppur
IBA-viðmið – Category: A4i, B1i, B2
Stærð svæðis – Area: um 111.400 ha
Melrakkaslétta er fremur láglendur, þurrlendur og víðáttumikill skagi með lífauðugum fjörum, strandlónum og vötnum. Austurhlutinn er mýrlendur. Þetta svæði er einnig flokkað með sjófuglabyggðir og votlendi og önnur svæði inn til landsins, en hér verður aðeins gerð grein fyrir far- og vetrargestum.
Svæðið er mikilvægt á fartíma og þær tegundir sem ná alþjóðlegum verndarviðmiðum eru rauðbrystingur (7.300 fuglar), sanderla (3.700 fuglar), sendlingur (2.000 fuglar) og tildra (10.000 fuglar). Sendlingur að vetrarlagi uppfyllir einnig alþjóðleg viðmið (2.200 fuglar).
Melrakkaslétta er á náttúruminjaskrá og IBA-skrá.
Helstu far- og vetrargestir á Melrakkasléttu – Key passage migrants and winter visitors in Melrakkaslétta
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (fuglar) Number (birds) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
|
---|---|---|---|---|---|---|---|
Rauðbrystingur1 | Calidris canutus | Far–Passage | 7.300 | 1990 | 2,1 | B1i, B2 | |
Sanderla2 | Calidris alba | Far–Passage | 3.700 | 2011 | 1,9 | A4i, B1i | |
Sendlingur3 | Calidris maritima | Far–Passage | 2.000 | 1986 | 4,0 | A4i, B1i | |
Sendlingur4 | Calidris maritima | Vetur–Winter | 2.200 | 2012 | 4,4 | A4i, B1i | |
Tildra2 | Arenaria interpres | Far–Passage | 10.000 | 2011 | 6,7 | A4i, B1i | |
1Arnþór Garðarsson og Guðmundur A. Guðmundsson 1991. Yfirlit um gildi einstakra fjörusvæða fyrir vaðfugla. Óbirt skýrsla. 2Guðmundur Örn Benediktsson, óbirt heimild. – Unpublished source. 3Whitfield, D.P. og J. Magnusson 1987. The migration of waders through Melrakkaslétta, north-east Iceland. Wader Study Group Bulletin 49: 85–89. 4Náttúrustofa Norðausturlands, óbirt gögn. – Northeast Iceland Nature Research Centre, unpublished data. |
English summary
Melrakkaslétta is a low-lying peninsula in NE-Iceland with extensive heathlands, lakes and coastal lagoons. This section only deals with passage migrants and wintering birds. The area is an internationally important staging site for Calidris canutus (7,300 birds), Calidris alba (3,700 birds), Calidris maritima (2,000 birds) and Arenaria interpres (10,000 birds). Calidris maritima during winter also meets IBA-criteria (2,200 birds).