Ferjubakkaflói–Sólheimatunga
Ferjubakkaflói–Sólheimatunga
Svæðið er tilnefnt vegna vistgerða á landi og fugla.
Ferjubakkaflói–Sólheimatunga


Hóp við Ferjubakkaflóa.
Mörk
Flæðilönd, mýrar og engjar meðfram neðanverðri Hvítá, Norðurá og Gljúfurá í Borgarfirði, frá Ferjukoti og upp fyrir Sólheimatungu og að Hólmavaði í Norðurá.
Stærð
9,8 km2
Hlutfall lands: 91%
Hlutfall fersks vatns: 9%
Svæðislýsing
Á svæðinu eru víðáttumiklir flóar, flæðilönd og gróðursæl síki. Auk þess lygnar ár með ríkulegum botngróðri. Þarna er stundaður landbúnaður, stang- og skotveiði og nokkur sumarhúsabyggð er við svæðið vestanvert.
Forsendur fyrir vali
Á svæðinu er stórar og heillegar mýrar með starungsmýravist. Mikið af andfuglum fer hér um og hefur svæðið til skamms tíma haft alþjóðlega þýðingu fyrir álft og blesgæs en báðar þessar tegundir leita nú á haustin í æ ríkara mæli í kornakra í nágrenninu.
Vistgerðir
Vistgerð | Km2 | % af heildarflatarmáli | |
---|---|---|---|
Land | Starungsmýravist | 3,05 | <1 |
Fuglar
Tegund | Árstími | Fjöldi | Ár | % af íslenskum stofni |
---|---|---|---|---|
Álft | Far | 851 | 1982 | 8 |
Blesgæs | Far | 500 | 2013 | 2 |
Sjá einnig ítarlegri umfjöllun um votlendissvæðið Ferjubakkaflói–Hólmavað.
Ógnir
Dregið hefur mikið úr hefðbundnum landbúnaði á þessu svæði. Frístundabyggð, og þar með hætta á mengun yfirborðsvatns, er vaxandi sem og umferð fólks um svæðið.
Aðgerðir til verndar
Takmarka frekari framræslu og gæta þess að ekki verði byggt of nærri árbökkum. Endurheimt votlendis þar sem landnýting leyfir.
Núverandi vernd
Aðrar náttúruminjar | Númer |
---|---|
Ferjubakkaflói og Ystatunga | 211 |
Kortasjá
Ferjubakkaflói–Sólheimatunga í kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018, uppfært 26. maí 2020, 3. desember 2020.