Borgarey
Svæðið er tilnefnt vegna fugla.


Borgarey.
Mörk
Innsta eyjan í Ísafjarðardjúpi, út af Vatnsfjarðarnesi, ásamt 1 km verndarjaðri umhverfis.
Stærð
6,7 km2
Hlutfall lands: 6%
Hlutfall fjöru: 2%
Hlutfall sjávar: 92%
Svæðislýsing
Borgarey er fremur há og grösug. Æðardúntekja er stunduð í eyjunni sem og lundaveiði.
Forsendur fyrir vali
Alþjóðlega mikilvæg sjófuglabyggð og eitt af tíu stærstu lundavörpum landsins. Einnig er þar töluvert æðarvarp.
Fuglar
Tegund | Árstími | Fjöldi (pör) | Ár | % af íslenskum stofni |
---|---|---|---|---|
Lundi | Varp | 43.350 | 2014 | 2 |
Sjá einnig ítarlegri umfjöllun um sjófuglabyggðina Borgarey.
Ógnir
Engar, nema ef minkur bærist frá landi.
Aðgerðir til verndar
Ekki er ástæða til sérstakra aðgerða meðan eyjan er nýtt á þann hátt sem verið hefur.
Núverandi vernd
Aðrar náttúruminjar | Númer |
---|---|
Borgarey í Ísafjarðardjúpi | 341 |
Kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018.