Skipurit

Náttúrufræðistofnun Íslands er skipt í fjögur svið; tvö kjarnasvið sem endurspegla meginhlutverk stofnunarinnar eins og þau eru mótuð í lögum, stefnumótun og starfi og tvö stoðsvið sem fela í sér verkefni sem ganga þvert á kjarnastarfsemina. Að auki eru teymi sem vinna að ákveðnum verkefnum til lengri eða skemmri tíma, þvert á svið.

Framkvæmdastjórn er skipuð forstjóra og sviðsstjórum. Settur forstjóri er Eydís Líndal Finnbogadóttir.

Svið

Rannsóknir og vöktun

Svið rannsókna og vöktunar er vettvangur vísindalegra rannsókna á náttúru Íslands í dýrafræði, grasafræði og jarðfræði. Meðal verkefna eru:

  • Kerfisbundin skráning og rannsóknir á íslenskri náttúru
  • Kortlagning líffræði og jarðfræði
  • Vöktun lykilþátta íslenskrar náttúru
  • Umsjón fuglamerkinga
  • Ýmsar þjónusturannsóknir

Sviðsstjóri er Sunna Björk Ragnarsdóttir

Vísindasöfn og miðlun

Svið vísindasafna og miðlunar er vettvangur vísindalegra rannsókna á náttúru Íslands í dýrafræði, grasafræði og jarðfræði og miðlun upplýsinga um náttúru landsins. Meðal verkefna eru:

  • Kerfisbundin skráning og rannsóknir á íslenskri náttúru
  • Varðveisla náttúrugripa, ritsmíða og annarra gagna í vísindalegum heimildasöfnum og gagnagrunnum
  • Ráðgjöf við uppbyggingu sýningarsafna um náttúrufræði
  • Miðlun þekkingar um íslenska náttúru til skóla, fjölmiðla og almennings
  • Umsjón bókasafns, skjala- og ljósmyndasafns, vefs og útgáfu
  • Kortagerð og landupplýsingar

Sviðsstjóri er Anna Sveinsdóttir

Náttúruvernd

Svið náttúruverndar fer með margvísleg verkefni sem ganga þvert á kjarnasviðin tvö og tengjast því hlutverki stofnunarinnar að stuðla að vernd náttúrunnar, viðhalda fjölbreytni og leiðbeina um skynsamlegra nýtingu auðlinda. Meðal verkefna eru:

  • Ráðgjöf um hóflega nýtingu náttúrulegra auðlinda
  • Ráðgjöf til ráðherra
  • Umsagnir, svo sem um skipulagsmál og mat á umhverfisáhrifum framkvæmda
  • Skráning náttúruminja og mat á verndargildi þeirra
  • Umsjón með C-hluta náttúruminjaskrár
  • Umsjón með válistum
  • Alþjóðasamskipti

Sviðsstjóri er Snorri Sigurðsson

Rekstur

Rekstrarsvið heldur utan um málaflokka er varða daglegan rekstur stofnunarinnar. Þeir helstu eru:

  • Fjármálastjórn
  • Mannauður
  • Umsjón með húsnæði, eldhúsi og móttöku
  • Verkbókhald og vinnustund
  • Rekstur tölvukerfis

Sviðsstjóri er Lilja Víglundsdóttir