Lýsing
Undafífill án blaðhvirfingar á blómgunartíma, stöngulblöð með mjóan grunn en stilklaus. Gular blómkörfur.
BlaðPlöntur án blaðhvirfingar á blómgunartíma. Grunnur stilklausra stöngulblaða mjór. Kirtilhár á reifum stutt, gul. Blöð oft samþjöppuð neðantil á stöngli en stundum jafndreifð, einkum á hávöxnum plöntum. Blöð heilrend eða óverulega smátennt, sjaldan greinilega tennt, oftast græn, stundum eitthvað rauðleit eða smávegis blettótt. Stöngulblöð oftast fimm til tólf (Bergþór Jóhannsson 2004).
BlómReifar dökkar, frekar snubbóttar, snöggar en þó með nokkuð áberandi broddhárum, einkum á neðri hluta reifa. Stílar á þurrkuðum plöntum oftast gulir eða gulmórauðir, stundum mórauðir (Bergþór Jóhannsson 2004).
AldinFræ með svifhárakransi.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Biota
- Tegund (Species)
- Skeggfífill (Hieracium pullicalicitum)