Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þriðjudaginn 21. maí 2013 verður haldið málþing tileinkað minningu Guðmundar Kjartanssonar jarðfræðings en síðasta rannsóknarverkefni hans var aldursgreining og kortlagning Búrfellshrauns sem er samheiti á mörgum hraunum í Garðabæ og Hafnarfirði og runnið hafa frá Búrfellsgíg til sjávar. Guðmundur lést árið 1972.
Lesa meira
Birkikemba er smávaxið fiðrildi sem borist hefur til landsins á seinni árum og náð fótfestu í görðum okkar. Fiðrildin eru árrisul, fara á stjá í apríl og hverfa að mestu upp úr miðjum maí. Á þessum tíma ber einna mest á þeim sitjandi á húsveggjum og er fjöldinn stundum umtalsverður. Þessi litlu fiðrildi vekja athygli margra á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana og berast Náttúrufræðistofnun Íslands í auknum mæli með hverju árinu sem líður.
Lesa meira
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sveppafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands flytur erindi sitt Sveppir í Heimaey og Surtsey sumarið 2010 á Hrafnaþingi miðvikudaginn 8. maí kl. 15:15.
Náttúrufræðistofnun hefur staðið fyrir rannsóknum á stofnvistfræði fálka um langa hríð og með sérstakri áherslu á tengsl fálka og rjúpu. Þáttur í þessum rannsóknum hafa verið merkingar á fálkaungum. Tilgangurinn með merkingum er að fá upplýsingar um ferðalög fálka, átthagatryggð, kynþroskaaldur og afföll.
Ársfundur Náttúrufræðistofnunar var haldinn í 20. sinn föstudaginn 12. apríl s.l. á Hótel Natura. Fundurinn var vel sóttur, þar voru haldin ávörp og erindi um ýmis verkefni sem unnið hefur verið að á stofnuninni.
Lesa meira
Starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Íslands og Landgræðslu ríkisins hafa skoðað og kortlagt þrjú svæði þar sem sinueldar komu upp í lok mars s.l., í Gröf í Lundarreykjadal, Hvammi í Skorradal og við eyðibýlið Merkihvol í Landsveit. Bruninn í Gröf var langumfangsmestur en þar fór eldur yfir tæplega 40 hektara, við Merkihvol brunnu um 2 hektarar og innan við hálfur hektari í Hvammi.
Lesa meira
Nýlega samþykkti Ramsarsamningurinn þrjú ný svæði á Íslandi inn á alþjóðlega votlendisskrá sína. Það eru verndarsvæði blesgæsa í Andakíl við Hvanneyri, friðland í Guðlaugstungum og Snæfells- og Eyjabakkasvæðið.
Lesa meira
Það er ekki laust við að vorhugur sé kominn í starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Íslands í Garðabæ enda hefur góður vorboði gert vart við sig í Búrfellshrauni norðan við húsakynni stofnunarinnar.
Lesa meira
Gísli A. Víkingsson, sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, flytur erindi sitt Nýlegar breytingar á útbreiðslu og fæðu hvala við Ísland: Áhrif loftslagsbreytinga? á Hrafnaþingi miðvikudaginn 20. mars kl. 15:15.
Lesa meira