Fréttir
- 2024 chevron_right
- 2023 chevron_right
- 2022 chevron_right
- 2021 chevron_right
- 2020 chevron_right
- 2019 chevron_right
- 2018 chevron_left
- 2017 chevron_right
- 2016 chevron_right
- 2015 chevron_right
- 2014 chevron_right
- 2013 chevron_right
- 2012 chevron_right
- 2011 chevron_right
- 2010 chevron_right
- 2009 chevron_right
- 2008 chevron_right
- 2007 chevron_right
- 2006 chevron_right
Fréttir
Frjómælingar í júlí
Heildarfjöldi frjókorna í júlímánuði á Akureyri var 916 frjó/m3, svolítið yfir meðaltali 1998-2017 sem er 895 frjó/m3. Frjókorn voru samfellt í lofti á Akureyri allan mánuðinn. Langflest frjókornanna voru grasfrjó, 611 frjó/m3 og mældust þau nánast alla daga.
Leiðangur líffræðinga í Surtsey
Tegundafjöldi æðplantna hefur haldist nokkuð stöðugur síðustu ár í Surtsey eða um og yfir 60 tegundir en gróðurinn er almennt þroskamikill þetta sumarið vegna ríkjandi og langvarandi úrkomutíðar. Máfavarpi hefur heldur hnignað í eynni en varp fýla er með eðlilegu móti.
Náttúrufyrirbæri sem njóta sérstakrar verndar í...
Í 61. gr. náttúruverndarlaga er fjallað um sérstaka vernd tiltekinna vistkerfa og jarðminja. Náttúrufræðistofnun Íslands skal halda skrár yfir náttúrufyrirbæri sem þar eru talin upp, að birkiskógum undanskildum sem eru á höndum Skógræktarinnar.
Frjómælingar í júní
Í Urriðaholti í Garðabæ voru frjótölur mjög lágar í júní. Heildarfrjótala mánaðarins er 373 frjó/m3 en meðalfrjótala í júní er 1352 frjó/m3. Mest var um furufrjó, þá birkifrjó og loks grasfrjó en lítið mældist af öðrum tegundum. Mikil úrkoma og kuldi í júní skýrir hversu fá frjókorn mældust.
Fimm græn skref
Markmið með Grænum skrefum er að efla vistvænan rekstur ríkisins með kerfisbundnum hætti, einkum skrifstofurekstur, og hafa þannig jákvæð áhrif á umhverfið, bæta starfsumhverfi starfsmanna og draga úr rekstrarkostnaði.
Ný smádýr nema landið
Smádýr hafa alla tíð borist til landsins með hver kyns varningi. Fæst hafa þó náð hér varanlegri fótfestu en með hagstæðara veðurfari opnast ýmsum þeirra landnámsgluggi.
Frjómælingar í apríl og maí
Frjómælingar hófust á Akureyri 28. mars. Einungis eitt frjókorn mældist mars, í apríl var fjöldi frjókorna í meðallagi, 40 frjó/m3, en í maí var óvenju mikið af frjókornum í lofti eða 691 frjó/m3 (meðaltalið er 488 frjó/m3). Mest var um asparfrjó og voru þau í hámarki rétt eftir miðjan maímánuð.
Rjúpnatalningar 2018
Rjúpnatalningum á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands vorið 2018 er lokið. Mikil fjölgun rjúpna var alls staðar nema á Suðurlandi, Suðausturlandi og Austurlandi. Miðað við ástand stofnsins frá síðustu aldamótum er rjúpnafjöldinn í ár í meðallagi eða yfir meðallagi í öllum landshlutum.
Loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á Íslandi
Vísindanefnd um loftslagsbreytingar var skipuð af umhverfis- og auðlindaráðherra árið 2014 og var henni ætlað að taka saman rannsóknir um loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á Íslandi, um súrnun sjávar og einnig um stöðu og þörf á aðlögun að loftslagsbreytingum.