Náttúrufræðistofnun Íslands nýtur mikils trausts landsmanna

Stofnunin hefur tekið þátt í sömu könnun síðan 2007, að árinu 2013 undanskildu, og er hún áfram meðal þeirra stofnanna sem nýtur hvað mest trausts. Markmiðið með könnuninni er að kanna traust almennings til Náttúrufræðistofnunar Íslands og þróun á því, auk þess að bera niðurstöður saman við aðrar stofnanir.

Náttúrufræðistofnun Íslands nýtur mikils trausts 65% landsmanna, þar af bera um 9% fullkomið traust til stofnunarinnar, 23% mjög mikið traust og 33% frekar mikið traust. Þetta eru heldur betri niðurstöður en fengust úr könnuninni árið 2020 en þá naut stofnunin mikils trausts 59% landsmanna. Hlutlausum fækkaði um sex prósentustig milli ára, úr 36% í 30% og fjöldi þeirra sem bera lítið traust til stofnunarinnar minnkaði úr 5% í 4%.

Í samanburði við aðrar stofnanir kemur Náttúrufræðistofnun ágætlega út. Hún er fyrir ofan meðaltalið og er á róli með Lögreglunni og Seðlabanka Íslands.