Fréttir
- 2024 chevron_right
- 2023 chevron_right
- 2022 chevron_right
- 2021 chevron_left
- 2020 chevron_right
- 2019 chevron_right
- 2018 chevron_right
- 2017 chevron_right
- 2016 chevron_right
- 2015 chevron_right
- 2014 chevron_right
- 2013 chevron_right
- 2012 chevron_right
- 2011 chevron_right
- 2010 chevron_right
- 2009 chevron_right
- 2008 chevron_right
- 2007 chevron_right
- 2006 chevron_right
Fréttir
Veiðiþol rjúpnastofnsins 2021
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur metið veiðiþol rjúpnastofnsins haustið 2021 og hafa niðurstöðurnar verið kynntar Umhverfisstofnun með bréfi. Ráðlögð rjúpnaveiði í haust er um 20 þúsund fuglar.
Dagur íslenskrar náttúru
Dagur íslenskrar náttúru hefur verið haldinn hátíðlegur síðan árið 2011. Hjá Náttúrufræðistofnun Íslands vinna sérfræðingar að því flesta daga ársins að rannsaka og skoða náttúru Íslands og því er það stofnuninni fagnaðarefni að henni sé tileinkaður sérstakur heiðursdagur.
Frjómælingar í ágúst
Frjómælingar í ágúst sýndu að magn frjókorna í lofti á Akureyri var mikið, einkum fyrri hluta mánaðar. Í Garðabæ voru frjókorn hins vegar færri en í meðalári.
Frjómælingar í júlí
Heildarfjöldi frjókorna á Akureyri var 1948 frjó/m3 eða talsvert yfir meðaltali 1998–2020 sem er 898 frjó/m3. Frjókorn voru samfellt í lofti allan mánuðinn og voru flest 31. júlí, 376 frjó/m3. Síðustu 14 dagana í júlí fór fjöldi frjókorna sex sinnum yfir 100 frjó/m3.
Surtseyjarleiðangur jarðfræðinga 2021
Rannsóknaleiðangur jarðfræðinga Náttúrufræðistofnunar Íslands til Surtseyjar var farinn 15.–18. júlí.
Surtseyjarleiðangur líffræðinga 2021
Árlegur rannsókna- og vöktunarleiðangur Náttúrufræðistofnunar Íslands til Surtseyjar var farinn dagana 12. – 18. júlí.
Frjómælingar í júní
Á Akureyri var júní kaldur, einkum um miðjan mánuðinn. Þrátt fyrir það var heildarfjöldi frjókorna sá mesti frá árinu 2005 eða 1.322 frjó/m3 (meðaltalið er 695 frjó/m3). Frjókorn voru samfellt í lofti allan mánuðinn og greindust 19 frjógerðir.