Grasafræði
![]() |
| Sortulyng (Arctostaphylos uva-ursi) Ljósm. Hörður Kristinsson |
Grasafræði snýst um rannsóknir á plöntum í víðum skilningi. Til plantna teljast rauðþörungar, brúnþörungar, sveppir og eiginlegar plöntur, þ.e. grænþörungar, mosar, byrkningar og blómplöntur. Í nútíma flokkunarkerfum eru sveppir flokkaðir sem sérstakt ríki þótt þeir tilheyri enn plöntum í almennu tali. Eitt meginhlutverka Náttúrufræðistofnunar Íslands er skráning á náttúru Íslands, þ.e. þeim lífverum er hér vaxa, útbreiðslu þeirra og vistfræði. Til að sinna þessu hlutverki stunda grasafræðingar stofnunarinnar rannsóknir á flokkunarfræði og vistfræði íslenskra plantna.
Í plöntuvefsjá eru ítarlegar upplýsingar um háplöntur, mosa, fléttur og sveppi, útbreiðslu þeirra og einnig staðreyndasíður sem gefa ítarlegar upplýsingar um sérhverja plöntutegund með plöntulýsingu, ljósmyndum, röðun tegundar innan flokkunarfræðinnar, upplýsingum um búsvæði og útbreiðslu og fróðleik um skaðsemi og nytjar plöntunnar.
Fagsviðsstjóri í grasafræði er Starri Heiðmarsson.



