Talningar á heiðagæsum

Um áratugaskeið hafa gæsir verið taldar á vetrarstöðvum á Bretlandseyjum. Næstu helgi beinast talningar að heiðagæs. Náttúrufræðistofnun Íslands óskar eftir að fá upplýsingar um heiðagæsir sem fólk verður vart við hér á landi á næstu dögum, þar á meðal hvar þær sáust og mat á fjölda þeirra. Upplýsingarnar verða sendar samstarfsaðilum á Bretlandseyjum sem taka saman árlegar skýrslur um talningarnar.

Vinsamlegast sendið upplýsingar til Svenju N.V. Auhage (svenja@ni.is), einnig tekur Arnór Þ. Sigfússon (ats@verkis.is) hjá Verkís á móti slíkum upplýsingum.