Síðastliðin tvö ár hefur Náttúrufræðistofnun Íslands unnið að gerð þrívíddarlíkanna af landsvæðum sem nýtast við jarðfræðirannsóknir og vöktun svæða. Við sumar aðstæður og atburði eru landslagsbreytingar örar og í erindinu verður fjallað um vöktun Surtseyjar og gossvæðisins við Fagradalsfjall, þar sem sjáanlegar og magnbundnar breytingar eru umfangsmiklar.
Vegna Covid-19 verður erindið að þessu sinni einungis flutt í beinni útsendingu á Teams á netinu.