Eydís Líndal Finnbogadóttir er settur forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands frá og með 1. janúar 2022.
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur sett Eydísi Líndal Finnbogadóttur í embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands til eins árs. Eydís tekur við embættinu af Þorkeli Lindberg Þórarinssyni, sem hefur látið að störfum af eigin ósk.
Eydís er með B.S.-gráðu í jarðfræði og kennsluréttindi frá Háskóla Íslands. Þá hefur hún lokið M.S. (Candidat) í jarðfræði frá Kaupmannahafnarháskóla, M.S. í opinberri stjórnsýslu (MPA) og Diplóma í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands. Eydís er með landvarðaréttindi auk leiðsögumannaréttinda frá Menntaskólanum í Kópavogi.
Eydís hefur starfað hjá Landmælingum frá árinu 1999 og sem forstjóri stofnunarinnar frá 2019, eftir að hafa áður verið settur forstjóri frá 2018 og staðgengill forstjóra frá 2007.