Talningar á heiðagæsum

Heiðagæsir verða taldar hér á landi og á vetrarstöðvum á Bretlandseyjum 22.–23. október 2022. 

Um áratugaskeið hafa gæsir verið taldar á vetrarstöðvum á Bretlandseyjum. Um næstu helgi beinast talningar að heiðagæs. Náttúrufræðistofnun Íslands óskar eftir að fá upplýsingar um heiðagæsir sem fólk verður vart við hér á landi á næstu dögum, þar á meðal hvar þær sáust og mat á fjölda þeirra. Upplýsingarnar verða sendar samstarfsaðilum hér á landi og á Bretlandseyjum sem taka saman árlegar skýrslur um talningarnar.

Vinsamlegast sendið upplýsingarnar til Svenju N.V. Auhage (svenja@ni.is).