12. apríl 2023. Birgir Vilhelm Óskarsson: Ráðgátan um steingerðu fótsporin í Surtsey

Birgir Vilhelm Óskarsson jarðfræðingur flytur erindið „Ráðgátan um steingerðu fótsporin í Surtsey“ á Hrafnaþingi 12. apríl 2023 kl. 15:15.

Til eru frásagnir frá níunda áratugnum um steingerð fótspor manna í móberginu í Surtsey en ekki var vitað með vissu hvort um raunveruleg fótspor var að ræða eða hvernig þau mynduðust. Rannsókn var gerð til að kanna uppruna sporanna, aldur þeirra, myndun og hvort að hægt væri að komast að því hver eigendur þeirr væru. Í rannsókninni fundust fleiri fótspor og í dag hafa fundist samtals fimm gönguslóðir og 48 spor, sem sýna greinilega göngulag einstaklinganna sem mynduðu sporin og lögun og stærð skónna. Í erindinu verður farið yfir helstu niðurstöður rannsóknarinnar og greint frá förum einstaklinganna sem hafa möguleika geta myndað sporin. 

Hrafnaþing er haldið í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar Íslands að Urriðaholtsstræti 6–8 í Garðabæ. Erindið verður einnig flutt í beinni útsendingu á Youtube.

Fyrirlesturinn á Youtube: