1. febrúar 2012. Þorvaldur Þór Björnsson: Saga um steypireyði sem rak á land á Skaga

1. febrúar 2012. Þorvaldur Þór Björnsson: Saga um steypireyði sem rak á land á Skaga

Þorvaldur Þór Björnsson hamskeri á Náttúrufræðistofnun Íslands flytur erindi sitt um hvalabeinagrindur og steypireyði sem rak á land á Skaga síðsumars árið 2010 á Hrafnaþingi miðvikudaginn 1. febrúar kl. 15:15.

Fjallað verður í máli og myndum um vinnu við að afla hvalabeinagrinda en Náttúrufræðistofnun Íslands hefur slíkt með höndum lögum samkvæmt. Sagt verður frá hreinsun beinagrinda á strandstað og fullhreinsun þeirra en sú vinna tekur mjög mislangan tíma eftir stærð hvalanna. Einnig verður greint frá samsetningu og uppsetningu hvalabeinagrinda. Að lokum verða sýndar aðstæður og greint frá vinnu við að skera steypireyðina sem fannst 23. ágúst 2010 við Ásbúðir á Skaga.

Steypireyður er talin vera stærsta spendýr sem hefur lifað á jörðinni, hún getur orðið allt að 33 m löng og vegið um 110 til 190 tonn. Tegundin er talin vera í útrýmingarhættu. Hvalrekinn á Skaga 2010 er einstakur því það eru ekki til margar beinagrindur af steypireyði í heiminum.

Fyrirlesturinn á Youtube