Útbreiðsla
Sjósvala verpur fyrst og fremst við Nýfundnaland og í Kyrrahafi. Langstærsta byggð hennar í Evrópu er talin vera í Vestmannaeyjum. Sjósvala er alger farfugl.
Stofnfjöldi
Sjósvölustofninn í Vestmannaeyjum var áætlaður um 200 þúsund pör árið 1991 (Erpur Snær Hansen o.fl. 2009). Allt sjósvöluvarp hér er nú innan mikilvægra fuglasvæða (sjá töflu) en talið er að fáein pör hafi stundum orpið annars staðar, t.d. í Ingólfshöfða.
Válistaflokkun
VU (tegund í nokkurri hættu)
Ísland | Evrópuválisti | Heimsválisti |
---|---|---|
VU | LC | VU |
Forsendur flokkunar
Kynslóðalengd (IUCN): 13 árTímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir): 1991–2030
Sjósvala verpur nær eingöngu á einu svæði hér á landi og telst samkvæmt því í nokkurri hættu (VU, D2) sem er sama flokkun og í Válista 2000.
Viðmið IUCN: D2
D. Stofn mjög lítill eða takmarkaður:2. Stofn dvelur á mjög takmörkuðu svæði (t.d. minna en 20 km2) eða fáum stöðum (t.d. færri en 5). Slíkum stofni gæti verið hætta búin af umsvifum manna eða af tilviljanakenndum atburðum, fyrirvaralítið einhvern tíma í framtíðinni og þannig komist í bráða hættu eða jafnvel dáið út á skömmum tíma.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2000: Sjósvala var á válista sem tegund í nokkurri hættu (VU).
Global position
Sjósvala er talinn í nokkurri hættu (VU) á heimsválista.
Verndun
Sjósvala er friðuð samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Válisti
Eitt svæði hér á landi (Vestmannaeyjar) eru mikilvægt svæði fyrir sjósvölu.
A4 ii: heimsstofn/global 66.667 pör/pairs (BirdLife 2016)
B1 ii: Evrópa = 2.500 pör/pairs (BirdLife 2016)
Töflur
Mikilvæg sjósvöluvörp á Íslandi – Important colonies of Hydrobates leucorhous in Iceland.*
Svæði Area | Svæðisnúmer Area code | Árstími Season | Fjöldi (pör) Number (pairs) | Ár Year | % af íslenskum stofni % of Icelandic popul. | Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|---|---|---|---|---|---|
Vestmannaeyjar | SF-S_4 | B | 198.000 | 1991 | 100 | A4ii, A4iii, B1ii |
Alls–Total | 198.000 | 100 | ||||
*byggt á Erpur Snær Hansen o.fl. 2009. |
Myndir
Heimildir
BirdLife International 2016c. IUCN Red List for birds. http://www.birdlife.org [skoðað 20.10.2016].
Erpur Snær Hansen, Broddi Reyr Hansen og Jóhann Óli Hilmarsson 2009b. Sjósvölutal Vestmannaeyja. Veggspjald kynnt á Líffræðiráðstefnunni, 6.–7. nóvember 2009, Öskju, Háskóla Íslands. http://www.nattsud.is/skrar/file/Erpur%20S%20Hansen%20ofl%202009%20Sj%C3%B3sv%C3%B6lutal%20Vestmannaeyja.pdf [skoðað 6. október 2016].
Höfundur
Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, júní 2018, október 2018
Biota
- Tegund (Species)
- Sjósvala (Hydrobates leucorhous)
Samantekt á Ensku
Hydrobates leucorhous is a locally common breeding bird in Iceland with 198,000 pairs breeding at several sites in Vestmannaeyjar, S-Iceland, treated here as one colony of international importance.
Icelandic Red list 2018: Vulnerable (VU, D2), the same as last assessment in 2000.