Laust starf á starfsstöð Náttúrufræðistofnunar Íslands á Akureyri

Náttúrufræðistofnun Íslands leitar að starfsmanni í 50% starf í móttöku og þjónustu á starfsstöð stofnunarinnar á Akureyri. Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2022.

Helstu verkefni og ábyrgð felast í móttöku sýna og gagnaskráningu, þjónustu og samskiptum við viðskiptavini, umsjón með sameiginlegum rýmum ásamt eldhúsi og kaffistofu, innkaup og utanumhald á rekstrarvörum, umsjón með Grænum skrefum og Grænu bókhaldi starfsstöðvarinnar og aðstoð við sviðsstjóra og önnur tilfallandi verkefni.

Nánari upplýsingar um starfið