Fréttir
- 2024 chevron_right
- 2023 chevron_right
- 2022 chevron_left
- 2021 chevron_right
- 2020 chevron_right
- 2019 chevron_right
- 2018 chevron_right
- 2017 chevron_right
- 2016 chevron_right
- 2015 chevron_right
- 2014 chevron_right
- 2013 chevron_right
- 2012 chevron_right
- 2011 chevron_right
- 2010 chevron_right
- 2009 chevron_right
- 2008 chevron_right
- 2007 chevron_right
- 2006 chevron_right
Fréttir
Náttúrufræðistofnun Íslands fagnar degi íslenskrar...
Dagur íslenskrar náttúru er föstudaginn 16. september. Náttúrufræðistofnun Íslands ætlar að halda upp á daginn með því að bjóða til síðdegisgöngu um hraunið í nágrenni stofnunarinnar í Garðabæ og hádegisfræðslu um sveppi í húsakynnum stofnunarinnar á Akureyri.
Ný undirtegund æðplöntu fyrir landið
Í sumar fannst ný æðplöntutegund á Íslandi sem er náskyld hrafnastör. Með því hefur heildarfjöldi flokkunareininga (tegunda, undirtegunda og afbrigða) í Íslensku flórunni aukist úr 426 í 427.
Frjómælingar í ágúst
Í ágúst var fjöldi frjókorna í lofti á Akureyri svipaður og í meðalári en í Garðabæ var fjöldinn langt fyrir neðan meðaltal.
Umfangsmikil sjálfsáning stafafuru á Norðurlandi
Niðurstöður rannsókna á sjálfsáningu stafafuru í kringum tvo skógarreiti á Norðurlandi sýna að flatarmál sjálfsáinna stafafurusvæða var um tvöfalt stærra en upprunalegir skógarreitir á báðum stöðum.
Tunguskollakambur kannaður
Í mars 2022 hlaut Náttúrfræðistofnun Íslands styrk úr Orkurannsóknasjóði Landsvirkjunar til að rannsaka vistfræði og stofnerfðafræði tunguskollakambs, Struthiopteris fallax, sem er burknategund sem lifir einvörðungu á Íslandi.
Frjókornamælingar í rauntíma aðgengilegar á vefnum
Niðurstöður sjálfvirks frjógreiningamælis sem settur var upp á Akureyri í lok júlí eru nú aðgengilegar á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Veiðiþol rjúpnastofnsins 2022
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur metið veiðiþol rjúpnastofnsins haustið 2022 og hafa niðurstöðurnar verið kynntar Umhverfisstofnun með bréfi. Ráðlögð rjúpnaveiði í haust er um 26 þúsund fuglar.
Kort af farleiðum 300 evrópskra fugla
Í sumarbyrjun var gefinn út kortaatlas um ferðalög evrópskra fugla. Hann ber heitið The Eurasian African Bird Migration Atlas og inniheldur hann meðal annars fuglamerkingargögn frá Náttúrufræðistofnun Íslands.
Plast í saur refa á Íslandi
Út er komin grein í vísindatímaritinu Polar Biology sem fjallar um plast og annað rusl af manna völdum í refaskít.